Klakki

Aðalfundur Klakka ehf.

23.08 2019

30. ágúst 2019

Aðalfundur Klakka ehf. verður haldinn föstudaginn 30. ágúst 2019 að Smáratorgi 3 (9. hæð), 201 Kópavogur á skrifstofu Deloitte ehf. og hefst fundurinn kl. 10:00.

Dagskrá:

  1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins árið 2018.
     
  2. Ársreikningur félagsins fyrir árið 2018 ásamt skýrslu endurskoðenda lagður fram til staðfestingar.
     
  3. Ákvörðun um greiðslu arðs og ráðstöfun hagnaðar ársins.
     
  4. Kosning stjórnar.
     
  5. Kosning endurskoðunarfélags.
     
  6. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna.
     
  7. Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu Klakka ehf.
     
  8. Önnur mál.
     

Tillögur frá hluthöfum sem bera á upp á aðalfundi skulu vera komnar í hendur stjórnar eigi síðar en sjö dögum fyrir aðalfund.

Óskað er eftir að framboð til stjórnar félagsins berist skriflega til stjórnar að lágmarki fimm dögum fyrir aðalfund.

Fundargögn verða afhent á fundardegi.

Fundurinn mun fara fram á ensku.
 

Kópavogur, 23. ágúst 2019.
Stjórn Klakka ehf.

Gögn:
Dagskrá
Umboð einstaklings
Umboð félags


 

Til baka


Eldri tilkynningar