Klakki

Aðalfundur Klakka ehf.

12.08 2013

20. ágúst 2013

Aðalfundur Klakka ehf. verður haldinn þriðjudaginn 20. ágúst 2013 á Hilton Reykjavík Nordica að Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík, og hefst fundurinn kl. 10:00.

Dagskrá:

  1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins árið 2012.
  2. Ársreikningur félagsins fyrir árið 2012 ásamt skýrslu endurskoðenda lagður fram til staðfestingar. Ákvörðun um greiðslu arðs og jöfnun taps fyrir síðastliðið reikningsár.
  3. Kosning stjórnar.
  4. Kosning endurskoðunarfélags.
  5. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna.
  6. Tillaga stjórnar um að samþykkja starfskjarastefnu Klakka ehf.
  7. Önnur mál.

Tillögur frá hluthöfum sem bera á upp á aðalfundi skulu vera komnar í hendur stjórnarinnar eigi síðar en sjö dögum fyrir aðalfund.

Framboð til stjórnar félagsins skal berast skriflega til stjórnar eigi síðar en fimm dögum fyrir aðalfund.

Fundargögn verða afhent á aðalfundardegi frá kl.9:30 á fundarstað.


Reykjavík, 12. ágúst 2013.
Stjórn Klakka ehf.

Gögn:
Dagskrá
Tillögur
Umboð einstaklings 
Umboð félags

Til baka


Eldri tilkynningar