Klakki

Aðalfundur Klakka ehf.

18.08 2015

26. ágúst 2015

Aðalfundur Klakka ehf. verður haldinn miðvikudaginn 26. ágúst 2015 að Ármúla 1, 3. hæð, 108 Reykjavík, og hefst fundurinn kl. 9:00.

Dagskrá:

     1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins árið 2014.
     2. Ársreikningur félagsins fyrir árið 2014 ásamt skýrslu endurskoðenda lagður fram til staðfestingar. Ákvörðun um greiðslu arðs
         og ráðstöfun hagnaðar ársins.
     3. Tillaga um lækkun hlutafjár félagsins um kr. 303.327.655 til jöfnunar á uppsöfnuðu tapi.
     4. Tillaga um breytingu á samþykktum félagsins:
            a. Stjórn félagsins leggur til að fjárhæð í a-lið 1. mgr. 13. gr. verði breytt til samræmis við núverandi hámarksfjárhæð
                breytanlegra lána samkvæmt nauðasamningi félagsins frá árinu 2010. Jafnframt verði hækkuð samsvarandi heimild stjórnar
                í 2. mgr. 13. gr. til útgáfu nýrra hluta í tengslum við umbreytingu slíkra breytanlegra lána í hlutafé.
     5. Kosning stjórnar.
     6. Kosning endurskoðunarfélags.
     7. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna.
     8. Tillaga stjórnar um að samþykkja starfskjarastefnu Klakka ehf.
     9. Önnur mál.

Tillögur frá hluthöfum sem bera á upp á aðalfundi skulu vera komnar í hendur stjórnarinnar eigi síðar en sjö dögum fyrir aðalfund.

Framboð til stjórnar félagsins skal berast skriflega til stjórnar eigi síðar en fimm dögum fyrir aðalfund.

Fundargögn verða afhent á aðalfundardegi frá kl.8:30 á fundarstað.

Reykjavík, 18. ágúst 2015.
Stjórn Klakka ehf.

Gögn:
Dagskrá

Tillögur
Umboð einstaklings
Umboð félags

Til baka


Eldri tilkynningar