Klakki

Skipti: Fjárhagsleg endurskipulagning Skipta hf.

24.01 2013

Stjórn Skipta hf. hefur ákveðið að hefja fjárhagslega endurskipulagningu. Leitað verður samstarfs við lánardrottna félagsins við það verkefni og standa vonir til þess að tillögur liggi fyrir á fyrsta eða öðrum ársfjórðungi þessa árs. Líklegt er að tillögurnar muni fela í sér að óskað verði eftir því við eigendur skráðra skuldabréfa að þeir fallist á skilmálabreytingar á bréfunum og/eða breytingu skulda í hlutafé.

Skipti hafa á síðustu tveimur árum unnið á grundvelli þriggja ára áætlunar sem miðar að því að bæta rekstur félagsins og þar með auka virði þess. Sú áætlun hefur gengið eftir og afkoma félagsins hefur batnað verulega. Bráðabirgðauppgjör ársins 2012 liggur fyrir. Samkvæmt því verður rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) Skipta hf. um 8 milljarðar króna á árinu, án einskiptisliða, samanborið við 6.230 milljónir króna árið 2011 og 5.278 milljónir króna árið 2010.

Þrír nýir stjórnarmenn hafa verið kjörnir í stjórn Skipta hf. Benedikt Sveinsson, Heiðrún Jónsdóttir og Helgi Magnússon. Auk þeirra er stjórn skipuð Dagnýju Halldórsdóttur og Magnúsi Sch. Thorsteinsson forstjóra Klakka ehf. Benedikt er nýr formaður stjórnar og Heiðrún varaformaður.  Úr stjórn ganga Skúli Valberg Ólafsson, Jóhanna Waagfjörð og Jón Örn Guðmundsson. Klakki ehf. er eigandi 100% hlutafjár Skipta hf.

Til baka


Eldri tilkynningar