Klakki

Hluthafafundur Klakka ehf.

18.02 2019

11. mars 2019

Hluthafafundur Klakka ehf. kt. 610601-2350 verður haldinn þann 11. mars 2019 að Smáratorgi 3 (9. hæð), 201 Kópavogur og hefst fundurinn kl. 10:00. Boðað er til hluthafafundar að beiðni tiltekinna minnihluthafa í félaginu.

Dagskrá:

     1. Tillaga að breytingum á samþykktum félagsins:
          a. Grein 2 breytt til samræmis við núverandi heimilisfang félagsins að Hlíðasmára 2, 201 Kópavogi.

     2. Fundarefni samkvæmt beiðni frá tilteknum minnihluthöfum félagsins:
          a. Tillaga um að fram fari sérstök rannsókn, sbr. 1. mgr. 72. gr. laga um einkahlutafélög nr. 138/1994.
          b. Tillaga varðandi skipan stjórnar Lykils fjármögnunar hf.
          c. Tillaga varðandi hæfisskilyrði, viðmið og samsetningu stjórna innan samstæðu Klakka.
          d. Tillaga varðandi arðgreiðslu frá Lykli fjármögnun hf.
          e. Tillaga varðandi áætlaðan rekstrarkostnað félagsins fyrir árið 2019.
          f. Umræður um framtíð félagsins.

     3. Önnur mál.


Viku fyrir hluthafafund mun dagskrá og endanlegar tillögur vera til reiðu fyrir hluthafa í samræmi við 4. mgr. 63. gr. laga um einkahlutafélög.

Fundargögn verða afhent á fundardegi.

Fundurinn mun fara fram á ensku.


Kópavogur, 18. febrúar 2019.
Stjórn Klakka ehf.

Til baka


Eldri tilkynningar