Klakki

Klakki lýkur við söluna á Lykli

07.01 2020

Þann 10. október 2019 var undirritaður samningur um sölu á 100% hlutafjár í Lykli. Söluverðið var 9.250 m.kr. Að auki greiðir kaupandi fjárhæð sem samsvarar hagnaði Lykils fyrir árið 2019. Viðskiptin voru háð samþykki:

     (i) Hluthafafundar TM
     (ii) Fjármálaeftirlitsins
     (iii) Samkeppniseftirlitsins

Nú þegar öllum skilyrðum hefur verið fullnægt, hafa Klakki og TM lokið viðskiptunum og TM greitt kaupverðið (að undanskildu því sem nemur hagnaði ársins 2019, sem verður greiddur þegar ársreikningur liggur fyrir).

Til baka


Eldri tilkynningar