Klakki

Klakki undirritar samning um sölu á Lykli fjármögnun hf

10.10 2019

Eins og tilkynnt var þann 21. júlí sl. hefur Klakki ehf. átt í einkaviðræðum við Tryggingamiðstöðina hf. (TM) um sölu á Lykli fjármögnun hf. (Lykill). Þeim viðræðum lauk í dag með undirritun samnings um sölu á 100% hlutafjár í Lykli. 

Söluverðið er 9.250 m.kr. sem verður greitt í reiðufé auk þess greiðir kaupandi fjárhæð sem samsvarar hagnaði Lykils fyrir árið 2019. Eigið fé Lykils var 11.688 m.kr. um mitt ár 2019. Hlutfall söluverðs á móti áætluðu eigin fé í árslok 2019 er 0,82 miðað við áætlanir um afkomu Lykils á árinu 2019.

Viðskiptin eru háð samþykki hluthafa, Fjármálaeftirlitsins og Samkeppniseftirlitsins. Gangi kaupin eftir er gert ráð fyrir að Lykill verði hluti af samstæðu TM frá næstu áramótum.

Til baka


Eldri tilkynningar