Klakki

Kostagreining á eignarhlut Klakka í Lýsingu

31.05 2017


Klakki hefur samið við Beringer Finance um ráðgjöf við kostagreiningu (“Strategic Review”) til að meta mögulega valkosti vegna eignarhlutar Klakka í Lýsingu hf.  Gert er ráð fyrir að tillögur muni liggja fyrir í lok sumars.  Einn af þeim kostum sem eru til skoðunar er að leita tilboða í hlutafé Lýsingar, en verði það niðurstaðan mun Beringer Finance einnig veita Klakka ráðgjöf vegna þess verkþáttar. 

Klakki er eigandi 100% hlutafjár Lýsingar og hefur undanfarin ár unnið með stjórnendum félagsins að styrkingu og eflingu þess. Er það í samræmi við hlutverk Klakka sem er að stýra eignasafni sínu með virkum hætti með það að markmiði að efla starfsemi dótturfélaga og hámarka virði eigna í þágu hluthafa sinna.

Til baka


Eldri tilkynningar