Klakki

Fjárhagslegri endurskipulagningu Skipta lokið

20.06 2013

Í dag tilkynnir dótturfélag Klakka, Skipti hf., um lok fjárhagslegrar endurskipulagningar. Þar með lýkur ferli sem hófst í janúar 2013 og felur í sér umbreytingu óveðtryggðra skulda Skipta í hlutafé og endurfjármögnun veðtryggðra lána félagsins.

Skipti hf. („Skipti“) er dótturfélag Klakka ehf. („Klakka“), en Skipti er móðurfélag Símans, Mílu og fleiri félaga. Undanfarin ár hefur Skipti glímt við háar skuldir og erfitt rekstrarumhverfi í kjölfar efnahagshrunsins 2008.

Stjórnendur Skipta hafa með stuðningi Klakka leitast við að ná fram umtalsverðum rekstrarbata undanfarin ár. Aðgerðir sem gripið var til í því skyni að bæta arðsemi hafa leitt til þess að 12 mánaða EBITDA (utan einskiptisliða), sem nam 5.4 milljörðum króna árið 2010, er áætluð 9 milljarðar á yfirstandandi ári. Er því rekstrarafkoma kjarnastarfsemi orðin sambærileg við það sem gerist hjá norrænum fjarskiptafyrirtækjum. Þá náði Skipti samkomulagi við samkeppnisyfirvöld snemma á árinu 2013 sem dró umtalsvert úr óvissu tengdri rekstrinum.

Framangreindur árangur gerði Skiptum kleift að leita eftir samningum við lánardrottna sína í þeim tilgangi að koma skuldastöðu félagsins í sjálfbært horf. Í apríl 2013 samþykktu lánardrottnar einróma skilmála endurskipulagningarinnar og endurfjármögnun Skipta og dótturfélaga. Meginskilmálar endurskipulagningarinnar kveða á um að núverandi hlutafé verði framselt eigendum óveðtryggðra krafna gegn umbreytingu krafnanna í hlutafé, auk þess sem veðtryggð lán félagsins verða endurfjármögnuð.

Efndadagur samkomulagsins er í dag, 20. júní 2013. Í samræmi við skilmála endurskipulagningarinnar hefur Klakki í dag framselt alla hluti sína í Skiptum til óveðtryggðra kröfuhafa og er Klakki því ekki lengur hluthafi í Skiptum. Að sögn forstjóra Klakka, Magnúsar Scheving Thorsteinsson, eru lok endurskipulagningarferilsins fagnaðarefni fyrir Skipti og Klakka, stjórnendur Skipta eiga hrós skilið fyrir framlag sitt til árangursríks endurskipulagningarferlis og óskar Klakki félaginu alls hins besta.

Frekari upplýsingar veitir: 

Magnús Scheving Thorsteinsson - sími 774-7678 - mst@klakki.is

Til baka


Eldri tilkynningar