Klakki

Aðalfundur Klakka ehf.

08.06 2021


18. júní 2021

Aðalfundur Klakka ehf. verður haldinn föstudaginn 18. júní 2021 að Smáratorgi 3 (9. hæð), 201 Kópavogur á skrifstofu Deloitte ehf. og hefst fundurinn kl. 10:00.

Dagskrá:

     1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins árið 2020.

     2. Ársreikningur félagsins fyrir árið 2020 ásamt skýrslu endurskoðenda lagður fram til staðfestingar.

     3. Ákvörðun um greiðslu arðs og ráðstöfun afkomu ársins.

     4. Kosning stjórnar.

     5. Kosning endurskoðunarfélags.

     6. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna.

     7. Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu Klakka ehf.

     8. Önnur mál.


Tillögur frá hluthöfum sem bera á upp á aðalfundi skulu vera komnar í hendur stjórnar eigi síðar en sjö dögum fyrir aðalfund.

Óskað er eftir að framboð til stjórnar félagsins berist skriflega til stjórnar að lágmarki fimm dögum fyrir aðalfund.

Fundargögn verða afhent á fundardegi.

Fundurinn mun fara fram á ensku.


Kópavogur, 8. júní 2021.
Stjórn Klakka ehf.

Til baka


Eldri tilkynningar