Klakki

Aðalfundur Klakka ehf

21.06 2022


29. júní 2022

Aðalfundur Klakka ehf. verður haldinn miðvikudaginn 29. júní 2022 að Smáratorgi 3 (9. hæð), 201 Kópavogur á skrifstofu Deloitte ehf. og hefst fundurinn kl. 09:00.

Dagskrá:

     1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins árið 2021.
     
     2. Ársreikningur félagsins fyrir árið 2021 ásamt skýrslu endurskoðenda lagður fram til staðfestingar.
     
     3. Ákvörðun um greiðslu arðs og ráðstöfun afkomu ársins.

     4. Kosning stjórnar.
     
     5. Kosning endurskoðunarfélags.
     
     6. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna.
     
     7. Önnur mál.


Tillögur frá hluthöfum sem bera á upp á aðalfundi skulu vera komnar í hendur stjórnar eigi síðar en sjö dögum fyrir aðalfund.

Óskað er eftir að framboð til stjórnar félagsins berist skriflega til stjórnar að lágmarki fimm dögum fyrir aðalfund.

Fundargögn verða afhent á fundardegi.

Fundurinn mun fara fram á ensku.


Kópavogur, 21. júní 2022.
Stjórn Klakka ehf.

Til baka


Eldri tilkynningar